Leti eða veikindi?

Já það er spurningin.  Hélt að ég myndi ekki lifa gærdaginn af var svo að drepast úr ÖLLU.  Nótinn í nótt fór í að dreyma veikindi og var mikið af blóði í því.  Vaknaði með hausverk aldarinnar ógleði og beinverki.  Þannig að núna er ég að díla við samviskuna hvort ég sé veik eða með letikast á háu stigi.  Hef reynt að mæta veik í vinnu hingað til á þessum vinnustað og var að spá í að mæta í morgun þegar minn elskulegur eiginmaður spruði hvort þetta væri rétt hvort ég treisti mér?  þannig að ég lagðist niður aftur og hef verið að díla við þennan haus síðan en er núna að reyna að rétta mig upp áðru en eiginmaðurinn kemur heim úr vinnu í mat með eitthvað gómsætt handa mér en það verður að vera lystugt svo ógleðin hverfi.  Helgin var fín fékk dóttur og tengdason í heimsókn og var setið og horft á sjónvarp og prjónað alla helgina uppskorðið 9 stykki grifflur, sem sagt og 3 og hálft par. Ekki má gleyma að haldið var upp á afmæli örverpisins á föstudaginn.  Bara góður dagur það.  Hef verið að taka mig á í að halda upp á afmæli barnanna minna með jákvæðum hug.  Og held að nokkra ára uppskera sé að koma í ljós.  Það var stelpuþema í þessu afmæli bara þeir strákar sem eru frændur.  Mamman tók það nærri sér en lifði það af.  En hávaðin var samt mikill.  Núna er dúllan orðin 8 ára stór og fín stúlka.  

Annars er ekkert um að vera á næstunni aldrei þessu vant.  Engin árshátíð og ekkert jólahlaðborð.  Frekar fúlt.  Þetta er það eina sem manni finnst ekki mega klikka ég væri til að sleppa öllu öðru en árshátíð en svona er þetta.  aæsdlfkjawoæeit2wtjádklvjfawqi934t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gömul sál sem veit ekki hvað hún vill

Höfundur

Gömul sál sem veit ekki hvað hún vill
Gömul sál sem veit ekki hvað hún vill
Gift fjagra barna móðir sem vinnur úti en ekki hvað.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband